Dyggð - styrkleiki

Jákvæð sálfræði er ný grein í sálfræði sem rannsakar á vísindalegan hátt hvaða leið er best að fara þegar fólk vill bæta líf sitt og blómstra. Almennt hafa rannsóknir í sálfræði sýnt að það er best að horfa á jákvæða hluti hjá fólki frekar en neikvæða. Read more

Ljóssækni áhrif - Heliotropic effect

Ljóssækni áhrif eru sú tilhneiging lífvera að elta hreyfingu sólar frá austri til vesturs. Ljóssækni í sálfræði er skilgreind sem sú tilhneiging lífvera að laðast að því sem er lífgefandi og frá því sem er lífsógnandi.

Appreciative Intelligence

Dr. Tojo Thatchenkery,Professor and Director, Organization Development and Knowledge Management Program

bjó hugtakið Appreiative Intelligence, hann útskýrir það á heimsíðu sinni, slóðin er http://www.appreciativeintelligence.com/.

Tojo bjó til og skilgreindi hugtakið til að skýra út þær jákvæðu aðstæður fyrir frumkvöðla, sem sköpuðust í Silicon Walley í Kaliforníu  seint á níjunda áratugnum.  Erfitt að þýða hugtakið en Read more

Jákvæð sálfræði fyrir skólastofnanir

Fourishing schools sem þíða mætti Blómstrandi skólar, sérhæfir sig í námskeiðum og ráðgjöf fyrir skólastofnanir í jákvæðri sálfræði.

Þau eru með  þriggja daga námskeið fyrir skóla. Á þessum vinnunámskeiðum er markmiðið að

  • Mæla og næra styrkleika og dyggðir
  • Öðalst færni í að byggja upp bjartsýni og seiglu
  • Æfa jákvætt minni
  • Þróa jákvæð viðbrögð í samböndum
  • Byggja upp von
  • Rannsaka jákvæða þætti í skólastarfinu
  • Setja fram jákvæð markmið þar sem jákvæð sálfræði er höfð að leiðarljósi

Jákvæður sálfræðilegur auður - Positive Psychological Capital

Jákvæð sálfræði er ný kenning í sálfræði. Jákvæð sálfræði einblínir á þá jákvæðu þætti sem leiða til velgengni og ánægju. Upphaf kenningarinnar má rekja til þess að dr. Martin E.P. Seligman var forseti APA, honum fannst að almenn sálfræði einblíndi of mikið á neikvæðu hliðarnar hjá fólki og að það ætti að setja meira í að rannsaka grunninn á því að lifa hamingjusömu lífi.

Jákvæð vinnusálfræði er sá hluti sem snýr að fyrirtækjum,  rannsóknir miða við að finna jákvæðu hliðarnar í fyrirtækjum og starfsmönnum og sjá hvaða jákvæðu þættir það eru sem stuðla að því að fyrirtæki nái árangri og blómstri.

Aðferðin er að rannsaka vísindalega hvaða jákvæðu þættir  mynda  gott og heilbrigt fyritæki og hvernig þessir þættir auka framleiðni og árangur í fyrirtækinu.

Blómstrandi skólar - að auka von og bjartsýni í skólastarfi

Að byggja grunn fyrir vellíðan: Kerfisbundin styrkleika nálgun.

The Culver Academies, heimavistarskóli sem undirbýr nemdur undir framhaldsnám (collage) hefur með góðum árangri tekið jákvæða skólasálfræði inn í starfið.

Siðastliðin tvö sumur hefur starfólk skólans setið þriggja daga námskeið í að byggja styrkleika og jákvæðar tilfinningar.
Read more

Lykilhugtök í jákvæðri vinnusálfræði

Lykilhugtök í jákvæðri vinnusálfræði eru von, bjartsýni, sjálfstraust og seigla, einnig eru sálfræðingar að rannsaka, fórnfýsi, flæði, vináttu og fyrirgefningu. Þetta eru allt hugtök sem að tengjast ánægju og árangri í vinnu. Þegar ánægja og árangur í vinnu fer saman má segja að viðkomandi blómstri í vinnunni sem er markmið sem allir ættu að stefna að.

Styrkleikar og dyggðir

Martin Seligman og fleiri hafa skilgreint 24 styrkleika og dyggðir sem almennt þykir gott að hafa. Þeir einbeita sér að því að rannsaka hvernig þessar dyggðir nýtast fólki og hvernig sálfræðingar og manneskjan sjálf getur byggt á sínum styrkleikum og  blómstrað. Til að hjálpa fólki að átta sig á sínum styrkleikum eru þau búin að setja upp heimasíðu þar sem fólk getur tekið könnun. Það tekur um þrjátíu mínútur að taka könnunina og niðurstaðan kemur strax. Könnunin er á heimsíðu University of Pennsylvania, þú getur tekið könnunina með því að smella hér, könnun á styrkleikum og dyggðum.

Jákvæður sálfræðilegur auður

Með jákvæðum sálfræðilegum auði er átt við jákvæða eiginleika starfsfólks sem rannsóknir hafa sýnt að stuðla að aukinni velgengni fyrirtækisins

Hamingja og velgengni

Jákvæð sálfræði rannsakar hvað það er sem leiðir til hamingju og velgengni.  Í einkalífinu erum við að leita að hamingju sérstaklega en velgengni í vinnunni.  Jákvæð sálfræði er regnhlífarhugtak yfir rannsóknir á því hvað gerir okkur hamingjusöm í einkalífi. Positive Organizationa Scholarship er heitið yfir sömu fræði í vinnusálfræði.