Archive for 'Uncategorized'

Hamingjusamari.is

Er komin með nýja heimsasíðu

http://www.hamingjusamari.is

Námskeið að hefjast í Síðumúla

 Verð í vetur með námskeið í jákvæðri sálfræði í Síðumúla 8, 2.hæð.  Á námskeiðunum verður fjallað um það hvað stuðlar að því að einstaklingar og samfélög blómstri.  Áherslan er á styrkleika einstaklinga,  jákvæðar tilfinningar og heilbrigð samskipti.
Ávinningur
Eftir námskeiðið ættu þátttakendur að
• hafa öðlast nýja sýn á eigin styrkleika
• leiðir til að finna styrkleika hjá sjálfum sér og öðrum
• átta sig betur á vægi jákvæðra tilfinninga í starfi og þekkja leiðir til að stuðla að jákvæðum tilfinningum
• hafa áttað sig á mikilvægi vináttu og gleði í vinnu
• vita um gildi hamingju fyrir afköst og vinnugleði
• færni til að auka seiglu og bjartsýni hjá sjálfum sér og öðrum
• hæfni til að nota styrkleika sína á markvissari hátt. Fyrsta námskeiðið er tvö skipti  laugardaginn 12. september og fimmtudaginn 17. september. Létt og skemmitleg heimaverkefni á milli.

Síminn hjá Jákvæðri sálfræði er: 690 0310, netfang:annajonag@gmail.com

Góðverk og styrkleikinn góðmennska- Þjálfun Markúsar 3.þáttur-

Hæglát og gleðirík hamingja er raunhæfur kostur að vinna að með þjálfun í jákvæðri sálfræði. Til mikils er að vinna því að hamingjusömu fólki gengur betur í vinnu, sér hlutina í öðru ljósi og er líklegra til að gera hluti sem að stuðla að því að það verði áfram hamingjusamt. Það eru nokkar leiðir, sem eru þekktar og rannsakaðar að fræðimönnum, til þess fallnar að auka hamingju okkar. Ein af þeim að láta fólk að gera góðverk, sérstaklega hefur reynst vel ef þátttakendur gera fimm góðverk sama daginn. Gott er að venja sig á að taka einn dag í viku
Read more

Að auka vægi jákvæðra tilfinninga og nýta styrkleika - Þjálfun Markúsar þáttur 1

Ég læt fólk sem kemur á námskeið til mín gera verkefni sem eru til þess fallin að auka vægi jákvæðra tilfinninga og gefa fólki vísbendingu um styrkleika sína og hvernig hægt er að vinna með þá. Verkefnin eru þannig að allir hafa gott af því að gera þau. Markús Þórhallsson á Útvarpi Sögu er áhugasamur um jákvæða sálfræði. Ég mun koma til hans vikulega í beina útsendingu og leggja fyrir hann verkefni og fara með honum yfir verkefnin síðustu viku. Markmiðið er að hlustendur taki þátt og geri verkefnin heima. Fyrir fyrsta þáttinn sem var miðvikudaginn 1. júlí kl. 8:20  tók Markús próf sem gefur okkur góða mynd af því hvaða styrkleika hann hefur,


Read more

Próf sem sýnir þér topp fimm styrkleika þína

Hér ef slóð á próf byggt á flokkunarkerfi um styrkeika. Styrkleikarnir eru 24. Ég mælist til þess að fólk taki prófi áður en það kemur til mín á námskeið eða fyrirlestur.
Prófið er á ensku og það tekur u.þ.b. hálfa klukkustund að taka það. Prófið vistast og allaf er hægt að ganga að niðurstöðunni vísri.
VIA Signature Strengths Questionnaire
Measures 24 Character Strengths
http://www.authentichappiness.sas.upenn.edu/default.aspx

Jákvæð sálfræði -leið til velfarnaðar

Námskeið um jákvæða sálfræði, Farið verður yfir grunnatriði í jákvæðri sálfræði. Þáttakendur taka greiningarkönnun til að finna sína styrkleika. Þá er farið yfir hvernig þessir þátttakendur geta auðgað líf sitt með því að nota styrleikana.

Jákvæð sálfræði

Jákvæð sálfræði, er stækkandi grein innan sálfræðinnar. Hún miðar við að kenna okkur að viðhalda andlegu heilbrigði, ýta undir styrkleika okkar og efla okkur í samskiptum. Jákvæð sálfræði er ekki vandamála miðuð og er ekki hugsuð til að lækna geðsjúkdóma.

Lasse Savola

Sjá má viðtal Jóhönnu Vilhjálmsdóttur við Lasse á vef rúv.

Moodle

Ákvað að skila áfanganum sál 203 sem skilaáfanga í Moodle fyrir margmiðlun hjá Torfa. Í áfanganum eru glósur í PowerPoint, vefleiðangarar sem ég hef sjálf búið til og gagnvirk krossapróf, það mættu vera fleiri myndir í áfanganum og mund ég stefna að því að fjölga myndum bæði á forsíðunni og inni í glósunum. Einnig á ég eftir að breyta öllum PowerPoint skjölum í pdf skjöl og vista þau líka á heimsíðunni minni annajona.net.

Áfanginn er opinn fyrir gesti, en leyfir ekki að gestir skoði próf.

Ný síða fyrir nkn

Er komin með nýja síðu fyrir Nkn. Hún er á slóðinni http://wp.khi.is/anngudmu.