Frjáls og opin hugbúnaður
Merkilegt viðtal Oddnýjar Helgadóttur við Viany Cupta og Eben Moglen í Morgunblaðinu þann 20. júlí, 2008.
Vinay Cupta og Eben Moglen vilja meina að fólk eigi ekki að eiga hugmyndir. Moglen er prófessor við Columbia-háskóla. Hann er stofnandi og stjórnandi Software Freedom Law Center. Cupta hannaði ódýra flóttamannabústaði. Á heimasíðu sem hann setti upp er hægt að hala niður ókeypis hugbúnaði til að hanna svona bústað í hvaða verksmiðju sem er.
Cupta og Moglen vilja meina að frjáls og opin hugbúnaður geti breytt lífi fólks. Þannig að þekking sé ekki í einkaeigu. Engu að síður geti þeir sem koma fram með þekkinguna haft tekjur af henni, tekjurnar bara dreifist í stað þess að safnast algerlega á þann uppgvötvaði þekkinguna.
Cupta vill gjarnan hjálpa til við að leysa vandamál þróunarríkjanna og draga úr fátækt almennt. Hann telur að í sumum tilfellum séu það sáraeinföld ráð sem geti breytt miklu. T.d. sé hægt að gera vatn drykkjarhæft með því að láta að standa í vatnsflösku í sól í 8 tíma.
Cupta telur að það að hafa lausnir og aðferðir sem þessar á netinu, á sem flestum tungumálum, geti hjálpað fólki að bjarga sér.
