Námskeið í Neskirkju
Neskirkja stendur nú fyrir fræðslukvöldunm á þriðjudögum. Í kvöld var ég með námskeið um jákvæða sálfræði. Námskeiðið um jákvæða sálfræði verður þrjú kvöld. Fyrsta kvöldin er áherslan á styrkleika, annað kvöldið á jákvæðar tilfinningar og þriðja og síðasta kvöldið á samskipti.
Við förum yfir mikið efnið í kvöld og ég setti þátttakendum fyrir fullt af heimaverkefnum, þ.e. ekki er skylda að gera verkefnin, heldur eru þau meira hugsuð fyrir fólk sem vill fara dýpra í hlutina.
- Eitt verkefnið er að fara taka styrkleikapróf á netinu. Prófið er á síðunni http://www.authentichappiness.org og heitir
VIA Survey of Character Strengths
Measures 24 Character Strengths
Til að taka prófið sem er ókeypis, þarf að fara í register sem er efst til vinstri á síðunni og gefa upp upplýsingar um nafn, aldur, stöðu og fleira.
- Einnig benti ég þátttakendum á að taka próf sem mælir neikvæðar og jákvæðar tilfinningar það er á
síðunni http://posivyeratio.com, einfalt er að taka prófið er og ekki er nauðsynlegt að skrá sig en það er þó æskilegt sérstakelga ef fólk vill að síðan visti svörin, en einnig er hægt að prenta þau út.
- Fyrir þá sem eru tilbúnir að borga fyrir próf, þá er Realise 2 góður kostur, það er á
síðunni http://www.cappeu.com/realise2.htm
Það kostar u.þ.b. 3500 íslenskar krónur og greiða þarf fyrir það með kreditkorti.
