Archive for 'jákvæð vinnusálfræði'

Próf sem sýnir þér topp fimm styrkleika þína

Hér ef slóð á próf byggt á flokkunarkerfi um styrkeika. Styrkleikarnir eru 24. Ég mælist til þess að fólk taki prófi áður en það kemur til mín á námskeið eða fyrirlestur.
Prófið er á ensku og það tekur u.þ.b. hálfa klukkustund að taka það. Prófið vistast og allaf er hægt að ganga að niðurstöðunni vísri.
VIA Signature Strengths Questionnaire
Measures 24 Character Strengths
http://www.authentichappiness.sas.upenn.edu/default.aspx

Appreciative Intelligence

Dr. Tojo Thatchenkery,Professor and Director, Organization Development and Knowledge Management Program

bjó hugtakið Appreiative Intelligence, hann útskýrir það á heimsíðu sinni, slóðin er http://www.appreciativeintelligence.com/.

Tojo bjó til og skilgreindi hugtakið til að skýra út þær jákvæðu aðstæður fyrir frumkvöðla, sem sköpuðust í Silicon Walley í Kaliforníu  seint á níjunda áratugnum.  Erfitt að þýða hugtakið en
Read more

Jákvæður sálfræðilegur auður - Positive Psychological Capital

Jákvæð sálfræði er ný kenning í sálfræði. Jákvæð sálfræði einblínir á þá jákvæðu þætti sem leiða til velgengni og ánægju. Upphaf kenningarinnar má rekja til þess að dr. Martin E.P. Seligman var forseti APA, honum fannst að almenn sálfræði einblíndi of mikið á neikvæðu hliðarnar hjá fólki og að það ætti að setja meira í að rannsaka grunninn á því að lifa hamingjusömu lífi.

Jákvæð vinnusálfræði er sá hluti sem snýr að fyrirtækjum,  rannsóknir miða við að finna jákvæðu hliðarnar í fyrirtækjum og starfsmönnum og sjá hvaða jákvæðu þættir það eru sem stuðla að því að fyrirtæki nái árangri og blómstri.

Aðferðin er að rannsaka vísindalega hvaða jákvæðu þættir  mynda  gott og heilbrigt fyritæki og hvernig þessir þættir auka framleiðni og árangur í fyrirtækinu.

Lykilhugtök í jákvæðri vinnusálfræði

Lykilhugtök í jákvæðri vinnusálfræði eru von, bjartsýni, sjálfstraust og seigla, einnig eru sálfræðingar að rannsaka, fórnfýsi, flæði, vináttu og fyrirgefningu. Þetta eru allt hugtök sem að tengjast ánægju og árangri í vinnu. Þegar ánægja og árangur í vinnu fer saman má segja að viðkomandi blómstri í vinnunni sem er markmið sem allir ættu að stefna að.

Jákvæður sálfræðilegur auður

Með jákvæðum sálfræðilegum auði er átt við jákvæða eiginleika starfsfólks sem rannsóknir hafa sýnt að stuðla að aukinni velgengni fyrirtækisins

Hamingja og velgengni

Jákvæð sálfræði rannsakar hvað það er sem leiðir til hamingju og velgengni.  Í einkalífinu erum við að leita að hamingju sérstaklega en velgengni í vinnunni.  Jákvæð sálfræði er regnhlífarhugtak yfir rannsóknir á því hvað gerir okkur hamingjusöm í einkalífi. Positive Organizationa Scholarship er heitið yfir sömu fræði í vinnusálfræði.

Jákvæð vinnusálfræði

Caza og Cameron halda því fram að Jákvæð vinnusálfræði dragi þekkingu úr allri flóru vinnusálfræði til að skilja, útskýra og spá fyrir um tilvist, orsök og afleiðingu jákvæðra þátta á vinnustöðum.