Archive by Author

Hamingjusamari.is

Er komin með nýja heimsasíðu

http://www.hamingjusamari.is

Námskeið í Neskirkju

Neskirkja stendur nú fyrir fræðslukvöldunm á þriðjudögum. Í kvöld var ég með námskeið um jákvæða sálfræði. Námskeiðið um jákvæða sálfræði verður þrjú kvöld. Fyrsta kvöldin er áherslan á styrkleika, annað kvöldið á jákvæðar tilfinningar og þriðja og síðasta kvöldið á samskipti.

Við förum yfir mikið efnið í kvöld og ég setti þátttakendum fyrir fullt af heimaverkefnum, þ.e. ekki er skylda að gera verkefnin, heldur eru þau meira hugsuð fyrir fólk sem vill fara dýpra í hlutina.

VIA Survey of Character Strengths
Measures 24 Character Strengths
Til að taka prófið sem er ókeypis, þarf að fara í register sem er efst til vinstri á síðunni og gefa upp upplýsingar um nafn, aldur, stöðu og fleira.

  • Einnig benti ég þátttakendum á að taka próf sem mælir neikvæðar og jákvæðar tilfinningar það er á

síðunni http://posivyeratio.com, einfalt er að taka prófið er og ekki er nauðsynlegt að skrá sig en það er þó æskilegt sérstakelga ef fólk vill að síðan visti svörin, en einnig er hægt að prenta þau út.

  • Fyrir þá sem eru tilbúnir að borga fyrir próf, þá er Realise 2 góður kostur, það er á

síðunni  http://www.cappeu.com/realise2.htm
Það kostar u.þ.b. 3500 íslenskar krónur og greiða þarf fyrir það með kreditkorti.

Námskeið að hefjast í Síðumúla

 Verð í vetur með námskeið í jákvæðri sálfræði í Síðumúla 8, 2.hæð.  Á námskeiðunum verður fjallað um það hvað stuðlar að því að einstaklingar og samfélög blómstri.  Áherslan er á styrkleika einstaklinga,  jákvæðar tilfinningar og heilbrigð samskipti.
Ávinningur
Eftir námskeiðið ættu þátttakendur að
• hafa öðlast nýja sýn á eigin styrkleika
• leiðir til að finna styrkleika hjá sjálfum sér og öðrum
• átta sig betur á vægi jákvæðra tilfinninga í starfi og þekkja leiðir til að stuðla að jákvæðum tilfinningum
• hafa áttað sig á mikilvægi vináttu og gleði í vinnu
• vita um gildi hamingju fyrir afköst og vinnugleði
• færni til að auka seiglu og bjartsýni hjá sjálfum sér og öðrum
• hæfni til að nota styrkleika sína á markvissari hátt. Fyrsta námskeiðið er tvö skipti  laugardaginn 12. september og fimmtudaginn 17. september. Létt og skemmitleg heimaverkefni á milli.

Síminn hjá Jákvæðri sálfræði er: 690 0310, netfang:annajonag@gmail.com

Gleðilegt líf, gott líf og tilgangsríkt líf >farsæld..Þáttur 5 og 6

Farsælu lífi má skipta í þrjá flokka, gleðilegt líf sem fellst í að skemmta sér, gott líf er að hafa í sig á og verkefni við hæfi, vinnu, skóla eða annað. Tilgangsríkt líf er þriðji og síðasti hlutinn það snýr að því að við þurfum að hafa tilgang, eitthvað til að lífa lífinu fyrir, eitthvað sem er stærra en við sjálf, trúin, fjölskyldan eða hugsjón. Reynslan sýnir að gleðilegt líf getur ekki staðist eitt og sér, það er enginn sem getur verið hamingjusamur til lengdar með það eitt að leiðarljósi að skemmta sér, nauðsynlegt er að hafa verkefni við hæfi og tilgang til að raunverulegri hamingju sé náð.

Verkefnið sem ég setti Markúsi fyrir núna er að setja sér marmið.
Read more

Jákvæðar tilfinningar >önnur hugsun og hegðun - Þjálfun Markúsar 4. þáttur

Barbara L. Fredrickson gaf nýverið út bók Positivity þar sem hún kemur fram með nýjar rannsóknir sem sýna að ótti lokar huga okkar og hjarta en jákvæðar tilfinningar eins og von opna hug okkar og hjarta þannig að við náum meiri árangri í einkalífi og starfi. Til þess að hægt sé að segja að jákvæðar tilfinningar hafi yfirhöndina í okkar lífi þurfa þær að vera í hlutfallinu 3 - 1 á móti neikvæðum tilfinningjum.    The Positivity Self Test er próf sem Barbara hefur hannað til að kanna hlutfall jákvæðra tilfinninga.  Verkefnið sem ég setti Markúsi fyrir í þessari viku er að taka þetta próf á hverjum degi. TIlgangurinn er að vera meðvitaður um eigin
Read more

Góðverk og styrkleikinn góðmennska- Þjálfun Markúsar 3.þáttur-

Hæglát og gleðirík hamingja er raunhæfur kostur að vinna að með þjálfun í jákvæðri sálfræði. Til mikils er að vinna því að hamingjusömu fólki gengur betur í vinnu, sér hlutina í öðru ljósi og er líklegra til að gera hluti sem að stuðla að því að það verði áfram hamingjusamt. Það eru nokkar leiðir, sem eru þekktar og rannsakaðar að fræðimönnum, til þess fallnar að auka hamingju okkar. Ein af þeim að láta fólk að gera góðverk, sérstaklega hefur reynst vel ef þátttakendur gera fimm góðverk sama daginn. Gott er að venja sig á að taka einn dag í viku
Read more

Flæði og fullkominn dagur-Þáttur 2 með Markúsi

Mætti í morgun upp í Útvarp Sögu fm 99, 4 í annað sinn. Markús hélt þakkardagbók samviskusamlega og tók verkefnið alvarlega sem er mjög gott. Hann sagði að það hefði gert hann þakklátari og meðvitaðri um að njóta þess sem hann var að gera. Hins vegar hafði hann ekki komist í að hrofa á mynd er er búin að ákveða að horfa á myndina O Brother, Where Art Thou sem er kemur inn á styrkleikann fyrirgefningu og miskun sem er fjórði styrkleikinn sem Markús er með. Fyrir næsta þátt sem er 15. júlí setti ég honum fyrir tvö verkefni til viðbótar Fyrra verkefnið er að skipuleggja fullkomin dag. Fullkominn dagur er
Read more

Að auka vægi jákvæðra tilfinninga og nýta styrkleika - Þjálfun Markúsar þáttur 1

Ég læt fólk sem kemur á námskeið til mín gera verkefni sem eru til þess fallin að auka vægi jákvæðra tilfinninga og gefa fólki vísbendingu um styrkleika sína og hvernig hægt er að vinna með þá. Verkefnin eru þannig að allir hafa gott af því að gera þau. Markús Þórhallsson á Útvarpi Sögu er áhugasamur um jákvæða sálfræði. Ég mun koma til hans vikulega í beina útsendingu og leggja fyrir hann verkefni og fara með honum yfir verkefnin síðustu viku. Markmiðið er að hlustendur taki þátt og geri verkefnin heima. Fyrir fyrsta þáttinn sem var miðvikudaginn 1. júlí kl. 8:20  tók Markús próf sem gefur okkur góða mynd af því hvaða styrkleika hann hefur,


Read more

Próf sem sýnir þér topp fimm styrkleika þína

Hér ef slóð á próf byggt á flokkunarkerfi um styrkeika. Styrkleikarnir eru 24. Ég mælist til þess að fólk taki prófi áður en það kemur til mín á námskeið eða fyrirlestur.
Prófið er á ensku og það tekur u.þ.b. hálfa klukkustund að taka það. Prófið vistast og allaf er hægt að ganga að niðurstöðunni vísri.
VIA Signature Strengths Questionnaire
Measures 24 Character Strengths
http://www.authentichappiness.sas.upenn.edu/default.aspx

Gildi

Mikið er tala um gildi í jákvæðri sálfræði, sumir sálfræðingar ganga svo langt að segja að við getum ekki verið hamingjusöm neme að lifa í takt við gildi okkar.Það er misjafnt hvaða gildi fólk hefur í lífinu, setja má gildin upp í hring.
Íhaldssemi -Halda sig innan rammans, kurteisi
Hóglífi - njóta matar, kynlífs og frítíma
Vald - Áhrifastaða í þjófélaginu, ríkidæmi
Öryggi - Að vera hultur og að lög og reglu sé framfylgt
Sjálfstæði - Sjálfstæð hugsun og frelsi
Örvun - Spenna og áskorun
Hefðbundið - Virðing fyrir siðum og trúarbrögðum
Góðmennska - Hugsa um aðra
Afrek/ árangur - Persónulegur árangur í samkeppni við aðra í þjóðfélaginu