Námskeið að hefjast í Síðumúla
Verð í vetur með námskeið í jákvæðri sálfræði í Síðumúla 8, 2.hæð. Á námskeiðunum verður fjallað um það hvað stuðlar að því að einstaklingar og samfélög blómstri. Áherslan er á styrkleika einstaklinga, jákvæðar tilfinningar og heilbrigð samskipti.
Ávinningur
Eftir námskeiðið ættu þátttakendur að
• hafa öðlast nýja sýn á eigin styrkleika
• leiðir til að finna styrkleika hjá sjálfum sér og öðrum
• átta sig betur á vægi jákvæðra tilfinninga í starfi og þekkja leiðir til að stuðla að jákvæðum tilfinningum
• hafa áttað sig á mikilvægi vináttu og gleði í vinnu
• vita um gildi hamingju fyrir afköst og vinnugleði
• færni til að auka seiglu og bjartsýni hjá sjálfum sér og öðrum
• hæfni til að nota styrkleika sína á markvissari hátt. Fyrsta námskeiðið er tvö skipti laugardaginn 12. september og fimmtudaginn 17. september. Létt og skemmitleg heimaverkefni á milli.
Síminn hjá Jákvæðri sálfræði er: 690 0310, netfang:annajonag@gmail.com
