Gleðilegt líf, gott líf og tilgangsríkt líf >farsæld..Þáttur 5 og 6

Farsælu lífi má skipta í þrjá flokka, gleðilegt líf sem fellst í að skemmta sér, gott líf er að hafa í sig á og verkefni við hæfi, vinnu, skóla eða annað. Tilgangsríkt líf er þriðji og síðasti hlutinn það snýr að því að við þurfum að hafa tilgang, eitthvað til að lífa lífinu fyrir, eitthvað sem er stærra en við sjálf, trúin, fjölskyldan eða hugsjón. Reynslan sýnir að gleðilegt líf getur ekki staðist eitt og sér, það er enginn sem getur verið hamingjusamur til lengdar með það eitt að leiðarljósi að skemmta sér, nauðsynlegt er að hafa verkefni við hæfi og tilgang til að raunverulegri hamingju sé náð.

Verkefnið sem ég setti Markúsi fyrir núna er að setja sér marmið. Markmið þurfa að vera í takt við gildi og styrkleika hvers einstaklings. Æskilegt er að þau séu frekar um það sem á að gera heldur en það sem á ekki að gera. T.d. það er betra að setja sér það markmið að fara út að hlaupa og borða hollan mat heldur en að setja sér það markmið að vera ekki feitur.  Markús á núna að skoða 10 efstu styrleikana sína með það fyrir augum að velta fyrir sér gildum sínum í lífinu og leiðum til að nýta styrkleikana til að ná markmiðum sínum.

Hér má sjá myndband þar sem Martin Seligman, einn af forvígismönnum jákvæðrar sálfræði útskýrir muninn á gleðilegu, góðu og tilgangsríku lífi.

Martin Seligman:Why is psychology good?

Leave a Comment