Jákvæðar tilfinningar >önnur hugsun og hegðun - Þjálfun Markúsar 4. þáttur

Barbara L. Fredrickson gaf nýverið út bók Positivity þar sem hún kemur fram með nýjar rannsóknir sem sýna að ótti lokar huga okkar og hjarta en jákvæðar tilfinningar eins og von opna hug okkar og hjarta þannig að við náum meiri árangri í einkalífi og starfi. Til þess að hægt sé að segja að jákvæðar tilfinningar hafi yfirhöndina í okkar lífi þurfa þær að vera í hlutfallinu 3 - 1 á móti neikvæðum tilfinningjum.    The Positivity Self Test er próf sem Barbara hefur hannað til að kanna hlutfall jákvæðra tilfinninga.  Verkefnið sem ég setti Markúsi fyrir í þessari viku er að taka þetta próf á hverjum degi. TIlgangurinn er að vera meðvitaður um eigintilfinningar og í framhaldi að því að fá yfirsýn yfir það hvað stuðlar að jákvæðum tilfinningum. Prófið vistar niðurstöðu próftaka og geymir, þannig að það er hægt að vinna að því að bæta sig. Einnig er boðið upp á að þátttakendur setji inn upplýsingar um það sem er að gera í lífi sínu eins og tengi það við niðurstöðuna. Þannig að í raun er um mjög gott tilfinningalegt bókhald. Hér má sjá vídeó þar sem Barbara útskýrir hvað það skiptir miklu máli hvert hlutfall jákvæðra tilfinninga er hjá okkur.

One Comment

Hrefna  on July 31st, 2009

snilld!

Leave a Comment