Góðverk og styrkleikinn góðmennska- Þjálfun Markúsar 3.þáttur-

Hæglát og gleðirík hamingja er raunhæfur kostur að vinna að með þjálfun í jákvæðri sálfræði. Til mikils er að vinna því að hamingjusömu fólki gengur betur í vinnu, sér hlutina í öðru ljósi og er líklegra til að gera hluti sem að stuðla að því að það verði áfram hamingjusamt. Það eru nokkar leiðir, sem eru þekktar og rannsakaðar að fræðimönnum, til þess fallnar að auka hamingju okkar. Ein af þeim að láta fólk að gera góðverk, sérstaklega hefur reynst vel ef þátttakendur gera fimm góðverk sama daginn. Gott er að venja sig á að taka einn dag í viku og gera fimm góðverk þann dag. Ekki er verra að hafa vakndi auga alla daga fyrir tækifærum til að gera góðverk því að rannsónir sýna að það stuðlar að jákvæðum tilfinningum. Við verðum ánægð með okkur sjálf og okkur líður vel með að hafa hjálpað.  Góðverk getur talist að gefa blóð, færa veikum ættingja heita kjúklingasúpu, verja tíma með fólki sem þarf á því að halda, vera góður hlustandi. Einn af styrkleikum Markúsar er góðmennska og það er einmitt eitt af verkefnunum til að efla styrkleikann góðmennsku að gera góðverk með meðvituðum hætti.  Þannig að verkefnið ætti að vera gott fyrir Markús á fleiri en einn hátt.  Mikilvægt er að vera meðvitaður um styrkeika sína og ákvaða hátt við notum þá. Stundum á við að nota styrkleikana en ekki alltaf og það er þíðingarmikill þáttur í þjálfun í jákvæðri sálfræði og greina þarna á milli.

Leave a Comment