Flæði og fullkominn dagur-Þáttur 2 með Markúsi

Mætti í morgun upp í Útvarp Sögu fm 99, 4 í annað sinn. Markús hélt þakkardagbók samviskusamlega og tók verkefnið alvarlega sem er mjög gott. Hann sagði að það hefði gert hann þakklátari og meðvitaðri um að njóta þess sem hann var að gera. Hins vegar hafði hann ekki komist í að hrofa á mynd er er búin að ákveða að horfa á myndina O Brother, Where Art Thou sem er kemur inn á styrkleikann fyrirgefningu og miskun sem er fjórði styrkleikinn sem Markús er með. Fyrir næsta þátt sem er 15. júlí setti ég honum fyrir tvö verkefni til viðbótar Fyrra verkefnið er að skipuleggja fullkomin dag. Fullkominn dagur er klassískt verkefni í jákvæðri sálfræði og er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um það hvernig fullkominn dagur er. Helstu atriðin sem þarf að hafa í huga eru með hverjum vill maður vera og hvað er skemmtilegt að gera.

Annað verkefnið sem Markús fékk var að reyna að koma sér í aðstæður þar sem hann gleymir stund og stað og finnur fyrir alsælu, það er kallað flæði í jákvæðri sálfræði.  Í flæði gleymir fólk tímanum og áhyggjum og er í raun fullkomalega hamingjusamt.  Það er misjafnt hvað það er sem framkallar þessa jákvæðu tilfinningu hjá fólki. Mihály Csíkszentmihályi er frægur fyrir rannsóknir á flæði, hann varð fyrst var við það að listamenn, málarar og rithöfundar gleymdu tímanum heilu og hálfu dagana og virtust ekki muna eftir að borða eða gera annað sem venjulega kallar fólk til.  Hér útskýrir Mihály Csíkszentmihályi flæði á TED

Leave a Comment