Að auka vægi jákvæðra tilfinninga og nýta styrkleika - Þjálfun Markúsar þáttur 1
Ég læt fólk sem kemur á námskeið til mín gera verkefni sem eru til þess fallin að auka vægi jákvæðra tilfinninga og gefa fólki vísbendingu um styrkleika sína og hvernig hægt er að vinna með þá. Verkefnin eru þannig að allir hafa gott af því að gera þau. Markús Þórhallsson á Útvarpi Sögu er áhugasamur um jákvæða sálfræði. Ég mun koma til hans vikulega í beina útsendingu og leggja fyrir hann verkefni og fara með honum yfir verkefnin síðustu viku. Markmiðið er að hlustendur taki þátt og geri verkefnin heima. Fyrir fyrsta þáttinn sem var miðvikudaginn 1. júlí kl. 8:20 tók Markús próf sem gefur okkur góða mynd af því hvaða styrkleika hann hefur,
