Dyggð - styrkleiki
Jákvæð sálfræði er ný grein í sálfræði sem rannsakar á vísindalegan hátt hvaða leið er best að fara þegar fólk vill bæta líf sitt og blómstra. Almennt hafa rannsóknir í sálfræði sýnt að það er best að horfa á jákvæða hluti hjá fólki frekar en neikvæða.
Engu að síður er voru fleiri rannóknir gerðar á því sem telst vera galli hjá fólki. Þegar í upphafi fræðigreinarinnar var því ljóst að skilgreina þyrfti hvað væri dyggð og hvað teldist styrkleiki. Leitað var í smiðju, trúarleiðtoga og heimspekinga og almennings víða um heim og farið yfir rannsóknir sem þá þegar höfðu verið gerðar í sálfræði. Niðurstaðan var flokkunarkerfi sem samanstendur af 6 dyggðir og 24 styrkleikum. Nauðsynlegt var talið að skilgreina kostina og dygðirnar til að rannóknirnar yrðu markvissari og samstaða næðist um hugtakanotkun í greininni. Það hefur tekist mjög vel.
Á þeim tíu árum sem að jákvæð sálfræði hefur verið til sem fræðigrein hefur komið fram mikið af rannóknum byggðar á þessum skilgreiningum. Til að bæta líf sitt er gott að rækta þær dyggðir og styrkleika sem eru sterkastar hjá hverjum og einum. Nokkur dæmi eru gefin um það hér. Hægt er að gefa fólki hugmyndir um það hvernig er hægt að rækta kosti sína en best er þegar að fólk finnur nýjar leiðir til að nota kosti sína til að bæta líf sitt. Hægt er að taka perósnuleika próf sem raðar strykleikum próftaka í röð frá einn og upp í 24. Mest er horft á fyrstu fimm og er talað um fimm einkennisstyrkleika viðkomandi. Ég mæli með þessu prófi. Slóðin er
http://www.authentichappiness.sas.upenn.edu/Default.aspx
Dyggð - styrkleiki
- 1. Viska – sköpunargáfa, forvitni, opinn hugur, lærdómsást, dómgreind
Lesa um mikla hugsuði í söguni - Hugrekki – kjarkur, staðfesta, hollusta og heilindi
Hvað er hugrekki? Hugrekki til standa á sínu. - Mannúð – ást, góðmennska, félagsgreind
Gera góðverk, efla vináttutengsl - Réttlæti- borgarvitund, sanngirni, leiðtogahæfileikar
Kynna sér umfjöllun um réttlæti og leiðtoga - Hófsemi- fyrigefning, náð, auðmýkt, prúðmennska og sjálfstjórn
Tileinka sér hófsemi og umhverfisvernd - Næmni – að meta fegurð og snilld, þakklæti,von, skopskyn, andlegir hæfileikar.
Fræðast um listamenn og snillinga og temja sér þakklæti.
