Jákvæður sálfræðilegur auður - Positive Psychological Capital

Jákvæð sálfræði er ný kenning í sálfræði. Jákvæð sálfræði einblínir á þá jákvæðu þætti sem leiða til velgengni og ánægju. Upphaf kenningarinnar má rekja til þess að dr. Martin E.P. Seligman var forseti APA, honum fannst að almenn sálfræði einblíndi of mikið á neikvæðu hliðarnar hjá fólki og að það ætti að setja meira í að rannsaka grunninn á því að lifa hamingjusömu lífi.
Jákvæð vinnusálfræði er sá hluti sem snýr að fyrirtækjum, rannsóknir miða við að finna jákvæðu hliðarnar í fyrirtækjum og starfsmönnum og sjá hvaða jákvæðu þættir það eru sem stuðla að því að fyrirtæki nái árangri og blómstri.
Aðferðin er að rannsaka vísindalega hvaða jákvæðu þættir mynda gott og heilbrigt fyritæki og hvernig þessir þættir auka framleiðni og árangur í fyrirtækinu.
