Jákvæð sálfræði - íhlutun/inngrip

Jákvæð sálfræði er styrkleikabyggð nálgun. Hugmyndafræðin gengur út að að fólk þekki, næri og noti styrkleika sína til að öðlast meiri hamingju.  Oft er talað um  inngrip eða íhlutun í jákvæðri sálfræði til að gera fólk hamingjusamara.  Ég hef nú fengið Markús Þórhallsson útvarpsmann í lið með mér til að sýna um hvernig inngrip er að ræða. Ég set honum fyrir verkefni og við ræðum hvernig honum gengur í beinni útsendingu. Markmiðið er að gefa hlustendum tækifæri á að gera þetta með okkur. Verkefnin er þannig að allir geta gert þau og haft gott af.

Verkefnin miða að því að einstkaklingurinn þekki, næri og læri að nýta styrkleika sína. Einnig er mikil áhersla á jákvæðar tilfinningar og æfingar til að auka vægi jákvæðra tilfinninga í lífi okkar.

1. þáttur 16. júní

Fyrir þennan fyrsta þátt átti Markús að taka próf á netinu, Read more

Próf sem sýnir þér topp fimm styrkleika þína

Hér ef slóð á próf byggt á flokkunarkerfi um styrkeika. Styrkleikarnir eru 24. Ég mælist til þess að fólk taki prófi áður en það kemur til mín á námskeið eða fyrirlestur.
Prófið er á ensku og það tekur u.þ.b. hálfa klukkustund að taka það. Prófið vistast og allaf er hægt að ganga að niðurstöðunni vísri.
VIA Signature Strengths Questionnaire
Measures 24 Character Strengths
http://www.authentichappiness.sas.upenn.edu/default.aspx

Gildi

Mikið er tala um gildi í jákvæðri sálfræði, sumir sálfræðingar ganga svo langt að segja að við getum ekki verið hamingjusöm neme að lifa í takt við gildi okkar.

Það er misjafnt hvaða gildi fólk hefur í lífinu, setja má gildin upp í hring.

  • Íhaldssemi -Halda sig innan rammans, kurteisi
  • Hóglífi - njóta matar, kynlífs og frítíma
  • Vald - Áhrifastaða í þjófélaginu, ríkidæmi
  • Öryggi - Að vera hultur og að lög og reglu sé framfylgt
  • Sjálfstæði - Sjálfstæð hugsun og frelsi
  • Örvun - Spenna og áskorun
  • Hefðbundið - Virðing fyrir siðum og trúarbrögðum
  • Góðmennska - Hugsa um aðra
  • Afrek/ árangur - Persónulegur árangur í samkeppni við aðra í þjóðfélaginu

Dyggð - styrkleiki

Jákvæð sálfræði er ný grein í sálfræði sem rannsakar á vísindalegan hátt hvaða leið er best að fara þegar fólk vill bæta líf sitt og blómstra. Almennt hafa rannsóknir í sálfræði sýnt að það er best að horfa á jákvæða hluti hjá fólki frekar en neikvæða. Read more

Ljóssækni áhrif - Heliotropic effect

Ljóssækni áhrif eru sú tilhneiging lífvera að elta hreyfingu sólar frá austri til vesturs. Ljóssækni í sálfræði er skilgreind sem sú tilhneiging lífvera að laðast að því sem er lífgefandi og frá því sem er lífsógnandi.

Appreciative Intelligence

Dr. Tojo Thatchenkery,Professor and Director, Organization Development and Knowledge Management Program

bjó hugtakið Appreiative Intelligence, hann útskýrir það á heimsíðu sinni, slóðin er http://www.appreciativeintelligence.com/.

Tojo bjó til og skilgreindi hugtakið til að skýra út þær jákvæðu aðstæður fyrir frumkvöðla, sem sköpuðust í Silicon Walley í Kaliforníu  seint á níjunda áratugnum.  Erfitt að þíða hugtakið en skilgreiningin er að appreiative intelligence sé hæfileikinn til að skynja möguleika í ákveðnum kringumstæðum og með vilja sé þessi möguleiki nýttur þannig að eitthvað verður úr honum. Með öðrum orðum er það hæfileikinn til að horfa þannig á sérstakar kringumstæður að möguleikarnir verði sýnilegir, þó að þeir séu venjulega ekki sýnilegir óæfðu auga, og að gera nauðsynlegar ráðstafanir þannig að sú útkoma sem óskað er eftir komi í ljós í aðstæðunum.

Það að þessi hugsun sé til staðar í fyrirtækinu, það er hvernig get ég látið þetta virka frekar en hversu líklegt er að þessi hugmynd muni klikka hefur mikið að segja um það að hámarksárangri sé náð.

Jákvæð sálfræði fyrir skólastofnanir

Fourishing schools sem þíða mætti Blómstrandi skólar, sérhæfir sig í námskeiðum og ráðgjöf fyrir skólastofnanir í jákvæðri sálfræði.

Þau eru með  þriggja daga námskeið fyrir skóla. Á þessum vinnunámskeiðum er markmiðið að

  • Mæla og næra styrkleika og dyggðir
  • Öðalst færni í að byggja upp bjartsýni og seiglu
  • Æfa jákvætt minni
  • Þróa jákvæð viðbrögð í samböndum
  • Byggja upp von
  • Rannsaka jákvæða þætti í skólastarfinu
  • Setja fram jákvæð markmið þar sem jákvæð sálfræði er höfð að leiðarljósi

Jákvæður sálfræðilegur auður - Positive Psychological Capital

Jákvæð sálfræði er ný kenning í sálfræði. Jákvæð sálfræði einblínir á þá jákvæðu þætti sem leiða til velgengni og ánægju. Upphaf kenningarinnar má rekja til þess að dr. Martin E.P. Seligman var forseti APA, honum fannst að almenn sálfræði einblíndi of mikið á neikvæðu hliðarnar hjá fólki og að það ætti að setja meira í að rannsaka grunninn á því að lifa hamingjusömu lífi.

Jákvæð vinnusálfræði er sá hluti sem snýr að fyrirtækjum,  rannsóknir miða við að finna jákvæðu hliðarnar í fyrirtækjum og starfsmönnum og sjá hvaða jákvæðu þættir það eru sem stuðla að því að fyrirtæki nái árangri og blómstri.

Aðferðin er að rannsaka vísindalega hvaða jákvæðu þættir  mynda  gott og heilbrigt fyritæki og hvernig þessir þættir auka framleiðni og árangur í fyrirtækinu.

Blómstrandi skólar - að auka von og bjartsýni í skólastarfi

Að byggja grunn fyrir vellíðan: Kerfisbundin styrkleika nálgun.

The Culver Academies, heimavistarskóli sem undirbýr nemdur undir framhaldsnám (collage) hefur með góðum árangri tekið jákvæða skólasálfræði inn í starfið.

Siðastliðin tvö sumur hefur starfólk skólans setið þriggja daga námskeið í að byggja styrkleika og jákvæðar tilfinningar.
Read more

Lykilhugtök í jákvæðri vinnusálfræði

Lykilhugtök í jákvæðri vinnusálfræði eru von, bjartsýni, sjálfstraust og seigla, einnig eru sálfræðingar að rannsaka, fórnfýsi, flæði, vináttu og fyrirgefningu. Þetta eru allt hugtök sem að tengjast ánægju og árangri í vinnu. Þegar ánægja og árangur í vinnu fer saman má segja að viðkomandi blómstri í vinnunni sem er markmið sem allir ættu að stefna að.